Home Fréttir Í fréttum 14.10.2025 Lýsing, Hval­fjarðar­göng

14.10.2025 Lýsing, Hval­fjarðar­göng

18
0
Mynd: Vísir/Pjetur

Vegagerðin býður hér með út endurnýjun lýsingar í Hvalfjarðargöngum á Hringvegi 1.

Um er að ræða niðurrif núverandi veglýsingu, neyðarlýsingarlampa, leiðaljós á vegg ásamt lampa yfir neyðarsímaskáp og strengja ásamt uppsetningu nýrra lampa, rafstrengja og stýribúnað fyrir veglýsingu og uppsetning strengstiga í útskot og endurnýjun dreifiskápa +S103 í tæknirýmum.

Verkinu skal að fullu og öllu lokið eigi síðar en 20. maí 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum 26. september 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. október  2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.