Home Fréttir Í fréttum Virkjunarleyfi til bráðabirgða veitt fyrir Hvammsvirkjun

Virkjunarleyfi til bráðabirgða veitt fyrir Hvammsvirkjun

10
0
Mynd: Landsvirkjun.is

Í dag veitti Umhverfis-og orkustofnun Landsvirkjun virkjunarleyfi til bráðabirgða vegna undirbúningsframkvæmda við Hvammsvirkjun. Leyfið tekur til þeirra undirbúningsframkvæmda sem þegar voru hafnar og gildir í sex mánuði frá útgáfu.

Leyfðar undirbúningsframkvæmdir felast í uppsetningu vinnubúða, aðkomuvegi og annarri vegagerð innan framkvæmdasvæðis og efnisvinnslu fyrir vegagerð auk raf-, fjar- og hitavatnsveitu vinnubúða- og framkvæmdasvæðis. Þessar framkvæmdir eru ekki í eða við vatnsfarveg og munu því hvorki hafa bein né óbein áhrif á vatnshlot.

Landsvirkjun mun nú sækja um framkvæmdaleyfi til Rangárþings ytra svo hægt sé að halda áfram með þær undirbúningsframkvæmdir sem hafnar voru og áformað er að ljúki fyrir áramót í samræmi við áætlanir.

Landsvirkjun hefur þegar óskað eftir því að Umhverfis- og orkustofnun hefji á ný málsmeðferð við afgreiðslu á umsókn um virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar og um heimild til breytingar á vatnshloti.

Heimild: Landsvirkjun.is