Vegagerðin óskar eftir tilboðum í þurrfræsingu og tvöfalda klæðingu á vegum á Norðursvæði 2025.
Um er að ræða annars vegar fræsingu á núverandi slitlagi/burðarlagi, akstur og útlögn á burðarlagi og tvöfalda klæðingu. Samhliða fræsingu skal jafna hæðarlegu og þverhalla vegarins. Fræsingarkaflar eru staðsettir í Ljósavatnskarði Þingeyrjarsýslu og Hjaltadal Skagafirði. Vakin er athygli á að verktaki skal leggja til burðarlagsefni 0/22mm og steinefni í klæðingu 8/16, 11/16 og 8/11 mm, komið á verkstað.
Burðarlagsefni 0/22 mm
|
3.760 m³
|
Þurrfræsing
|
50.000 m2
|
Klæðingarefni
|
1.400 m³
|
Klæðingarefni 8/16
|
790 m³
|
Klæðingarefni 11/16
|
310 m³
|
Klæðingarefni 8/11
|
290 m³
|
Tvöföld klæðing
|
49.000 m2
|
Verklok eru 1. september 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 8. júlí 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júlí 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.