Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 22.07.2025 Laugar­vatns­vegur (37), Hjálms­stað­ir-Mið­dalskot, styrk­ing og malbik

22.07.2025 Laugar­vatns­vegur (37), Hjálms­stað­ir-Mið­dalskot, styrk­ing og malbik

23
0
Á Laugarvatni. Ljósmynd/Markaðsstofa Suðurlands

Vegagerðin býður hér með út styrkingu og malbikun 2,63 km kafla á Laugarvatnsvegi frá Hjálmsstöðum að Miðdalskoti.

Helstu magntölur eru:
Skeringar
5.000 m3
Lögn ræsa
42 m
Fláafleygar
4.900 m3
Styrktarlag 0/63
2.900 m3
Burðarlag 0/22
4.900 m3
Slitlagsmalbik á möl 6 cm
21.600 m2
Frágangur fláa
24.000 m2

Verklok eru 30. september 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 7. júlí 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júlí 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.