Home Fréttir Í fréttum Ár­bæingar áhyggju­fullir vegna um­deildra fram­kvæmda

Ár­bæingar áhyggju­fullir vegna um­deildra fram­kvæmda

24
0
Björn Gíslason er Árbæingur og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Einar

Unnið er að umfangsmiklum breytingum við gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls í Árbænum. Árbæingur segir ljóst að eftir framkvæmdirnar verði umferðartafir á svæðinu gríðarlegar og segir fleiri íbúa í hverfinu mjög áhyggjufulla.

Nýlega hófust framkvæmdir við gatnamótin en á næstunni verður farið framkvæmdir við fimm gatnamót Höfðabakka til að bæta umferðaröryggi og aðgengi vegfarenda.

Hingað til hafa verið þrjú framhjáhlaup á gatnamótunum. Brátt hverfa tvö þeirra á brott og í stað verða hægri beygjurnar ljósastýrðar. Ártúnsmegin hverfur fráreinin alveg, en Árbæjarmegin verður umferðarljósum komið fyrir við núverandi frárein.

Borgin áætlar að afköst og þjónustustig gatnamótanna breytist ekki mikið, en því er Björn Gíslason, borgarfulltrúi og Árbæingur, ekki sammála.

„Það gefur auga leið, þetta verður mjög þungt. Það eru mjög mörg fyrirtæki og stofnanir í Hálsahverfi og margir sem eru á leið í Breiðholt, Kópavog og Hafnarfjörð. Það segir sig sjálft að það verður algjör umferðarstappa hérna á Bæjarhálsinum. Áhyggjur Árbæinga eru líka, og mínar sérstaklega sem fyrrverandi slökkviliðsmaður, vegna þess að hér er slökkvistöð í Tunguhálsi. Það verður mjög erfitt fyrir þá að komast leiðar sinnar á þessum álagstímum,“ segir Björn.

Fráreinin fremst á myndinni til hægri verður ljósastýrð eftir breytinguna, en fráreinin efst til hægri verður fjarlægð.
Vísir/Sigurjón

Hann fagnar því að það eigi að uppfæra ljósastýringabúnað við gatnamótin, en bendir á að það sé nú þegar til mun öruggari leið fyrir gangandi og hjólandi.

„Það er ekki mikil umferð gangandi og hjólandi um þessi gatnamót, enda eru hér fimmtíu metrum neðar undirgöng undir Höfðabakkann sem fólk nýtir sér. Sérstaklega íbúar í Árbæ og Ártúnsholti. Það skiptir sköpum,“ segir Björn.

Hér fyrir neðan má sjá staðsetningu undirganganna.

Skjáskot af Já.is

Björn hefur rætt við fjölda íbúa í hverfinu sem hafa áhyggjur af breytingunni.

„Þeir hafa áhyggjur af þessu. Þeir komast á fleiri stöðum út úr hverfinu, en þessi leið er mikið farin af Árbæingum. En ég held að það breytist eitthvað núna, menn eru farnir að skoða aðrar leiðir héðan út úr hverfinu,“ segir Björn.

Heimild: Visir.is