
Eignasafnið er um 25 þúsund fermetrar í heildina.
Söluferli á FÍ fasteignafélagi, sem eru að mestu í eigu lífeyrissjóða, mun formlega hefjast á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt tilkynningu. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka annast söluferlið.
Eignasafn félagsins telur 11 fasteignir og samanstendur af fasteignunum við Amtmannsstíg 1, Ármúla 1, Álfheimum 74, Bankastræti 2, Bankastræti 7, Borgartúni 25, Hverfisgötu 103, Lækjargötu 3, Laufásveg 31, Víkurhvarfi 3 og Þverholti 11.
Eignasafnið er um 25 þúsund fermetrar í heildina og námu heildareignir 15,7 milljörðum króna í lok árs 2024.
Félagið tilkynnti í mars 2023 að eigendur þess hefðu ákveðið að hefja söluferli á félaginu.
FÍ fjárfestingarfélag hóf fjárfestingar í maí 2013. Fjárfestingartímabili félagsins lauk í nóvember 2016 en þá hafði verið fjárfest í framangreindum 11 fasteignum. Ábyrgðaraðili félagsins er FÍ fasteignafélag GP ehf., sem er er hluti af samstæðu Kviku banka.
Leigutekjur FÍ fasteignafélags námu 990 milljónum króna árið 2024. Útleiguhlutfall félagsins í lok árs 2024 var 83% og nánast allir leigjendur í skilum, að því er segir í nýjasta ársreikningi félagsins.
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingar námu 643 milljónir króna og matsbreytingar námu 859 milljónum. Hagnaður eftir skatta var um 623 milljónir króna.
Eignir fasteignafélagsins námu sem fyrr segir 15,7 milljörðum króna í árslok 2024, en þar af voru fjárfestingareignir 14,7 milljarðar og veltufjármunir 965 milljónir. Eigið fé nam 5,5 milljörðum króna.
Stærstu hluthafar FÍ fasteignafélags í árslok 2024

Heimild: Vb.is