Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Undirbúningur að útveggjaklæðningu á rannsóknahús

Undirbúningur að útveggjaklæðningu á rannsóknahús

38
0
Mynd: NLSH.is

Í febrúar síðastliðinn var undirritaður sérstakur viðaukasamningur milli Staticus og NLSH vegna útveggjaklæðningar rannsóknahúss, en Staticus sér einnig um tæknilegar hönnunarlausnir, framleiðslu og uppsetningu á útveggjaklæðningu meðferðarkjarna.

„Hönnunarfasi útveggjaverkefnis rannsóknahúss hófst því strax eftir undirritun þessa viðaukasamnings, en útveggjaverktaki, Staticus, hönnuðir rannsóknahúss, Corpus3, ráðgjafar NLSH, ACC/EFLA ásamt verkefnastjóra útveggjaverkefnis hjá NLSH hafa setið reglulega vinnustofufundi vegna yfirferðar á deiliteikningum og tæknilegum hönnunargögnum vegna útveggjaeininga rannsóknahússins.

Mynd: NLSH.is

Ásamt þessu vinnur Staticus nú að svokölluðu VMU, „visual mockup“ eða sýnishorn af útveggjatýpu í raunstærð, en meðfylgjandi myndir gefa innsýn inn í samsetningarferlið, “ segir Bergþóra Smáradóttir verkefnastjóri hjá NLSH.

Heimild: NLSH.is