Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum

29
0
Þorsteinn Yngvi Bjarnason, fjármálastjóri Orkureitsins, Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svanins, Bergþóra Kvaran, sérfræðingur hjá Umhverfis- og Orkustofnun, Hilmar Ágústsson, framkvæmdastjóri byggingarfélagsins Safír, Alma Dagbjört Ívarsdóttir og Hulda Einarsdóttir frá Verkvist, við afhendinguna á Svansvottun 4 fyrir byggingu á A-reit Orkureitsins sem sést í bakgrunni. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta bygg­ing­in sem ris­in er í Orkureitn­um, nýju hverfi við Laug­ar­dal­inn, hef­ur hlotið Svans­vott­un 4 en bygg­ing­in er sú fyrsta sem hlýt­ur vott­un­ina á öll­um Norður­lönd­un­um. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá SAFÍR bygg­inga­fé­lagi og Svan­in­um.

Nýja Svans­vott­un­in var veitt SAFÍR, sem er eig­andi og um­sjón­araðili Orkureits­ins, við form­lega at­höfn á dög­un­um.Stefnt er að því að aðrar bygg­ing­ar í hverf­inu hljóti Svans­vott­un 4 sömu­leiðis.

Svans­vott­un 4 er nýr staðall sem ger­ir tals­vert meiri kröf­ur en eldri staðall 3. Kröf­urn­ar snúa að því að skapa heil­næm­ara og ör­ugg­ara um­hverfi fyr­ir fólk, meðal ann­ars með kröf­um til dags­birtu­gæða, raka­ör­ygg­is, heil­næm­ara efn­is­vals og betri inni­vist­ar fyr­ir íbúa.

„Mik­ill sig­ur að vera fyrst á Norður­lönd­un­um“

„Viðmið Svans­ins eru hert reglu­lega til að sam­ræm­ast þeirri tækni og þróun sem bygg­ist upp á markaðinum hvað varðar um­hverf­is­mál,“ seg­ir Bergþóra Kvar­an, sér­fræðing­ur hjá Um­hverf­is- og Orku­stofn­un, í til­kynn­ing­unni. „Það er því virki­lega mik­ill sig­ur að vera fyrst á Norður­lönd­un­um til að hljóta Svans­leyfi sam­kvæmt þess­um nýju viðmiðum.“

Hún seg­ir gríðarleg tæki­færi til að gera bet­ur í stór­um verk­efn­um sem þess­um. SAFÍR hafi sýnt frum­kvæði með því að ákveða að Svans­votta og byggja á BREEAM-vottuðum reit þar sem tekið sé á þeim fjöl­mörgu atriðum sem skipti máli þegar komi að um­hverf­is­mál­um. ,,Í þessu verk­efni hef­ur verið hugað að inni­vist, los­un gróður­húsaloft­teg­unda, hringrás­ar­hag­kerf­inu, líf­fræðileg­um fjöl­breyti­leika og mörgu öðru,“ er haft eft­ir Bergþóru í til­kynn­ingu.

Heimild: Mbl.is