Framkvæmdir eru hafnar á skólaþorpi sem reist verður á bílastæði á horni Reykjavegar og Engjateigs í Laugardal. Skólaþorpið mun hýsa nemendur úr Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla og Langholtsskóla.
Skólaþorpið er tímabundið úrræði þar til framkvæmdir á skólum í Laugardal eru yfirstaðnar. Stefnt er að tíu kennslustofur verði teknar í notkun nú í haust.
Þá er áætlað að síðari áfangi skólaþorpsins, sem inniheldur sex kennslustofur auk 900 fermetra einingahúss, verði tilbúinn vorið 2026, segir Gréta Þórsdóttir Björnsson, deildarstjóri nýbyggingardeildar Reykjavíkurborgar, í samtali við mbl.is.

Mygla greinst í öllum skólunum
Mygla hefur greinst í öllum þremur grunnskólunum í Laugardal. Farið hefur verið í mótvægisaðgerðir og þrif til að bæta innivist og farið verður í viðhald og endurbætur þegar starfsemi verður flutt annað.
Viðhald skólanna er misaðkallandi en talin er mest þörf á endurbótum í Laugarnesskóla að sögn Grétu. Hluti nemenda úr Laugarnesskóla mun því stunda nám fyrst um sinn í skólaþorpinu.
Búið er að gera ástandsskýrslu á skólunum þremur og telur Gréta þörf á meiri háttar viðhaldi á skólunum.
Að sögn Grétu verður skólaþorpið ekki nægilega stórt til að hýsa börn úr skólunum þremur í einu. Þegar síðari áfanga framkvæmdanna lýkur komast öll börn úr Laugarnesskóla fyrir.
Ákveðin keðjuverkun
Gréta segir að viðhalds- og endurbótaframkvæmdum loknum á ákveðnum byggingum Laugarnesskóla getur hluti nemenda úr þeim skóla snúið aftur.
Við það losnar pláss í skólaþorpinu fyrir börn úr öðrum skólum og því næst er hægt að hefja nauðsynlegar framkvæmdir í næsta skóla.
Heimild: Mbl.is