Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE), kt. 690981-0259 fh. Ríkiseigna kt. 690981-0259 hér eftir nefndur verkkaupi, óska eftir tilboðum í framkvæmdir á húseign sem hýsir starfsemi Heilbrigðisstofnun Búðardals að Gunnarsbraut 2.
Um er að ræða rif og förgun á þakefni, ný þakklæðning sett á lektur. Endurnýjun á þakrennum og þær settar út fyrir þakkant og endurnýjun á þakniðurföllum. Þá skal fjarlægja plasteinangrun í þakinu og farga og setja steinullareinangrun ofan á steypta plötu. Þakið er með risi og heildarþakflötur er um 525 m2. Húsið er byggt árið 1975.
Þakið er klætt með trapisu járni og til stendur að endurnýja járnið og setja bárujárn í stað trapisu.
Um er að ræða almennt útboð að ræða eins og því er lýst í 2. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) og grein 1.2.2 í ÍST 30:2012. Útboð þetta er aðeins auglýst innanlands.
Lög um opinber innkaup má nálgast á heimasíðu Alþingis á slóðinni: https://www.althingi.is/lagas/nuna/2016120.html
Athugið að þar sem útboðið er einungis auglýst innanlands er ekki hægt að leita að útboðinu á TendSign.is, smellu á Skoða nánar til að finna útboðið
Sjá nánar tæknilýsingu/kröfulýsingu í útboðsgögnum.
Allar nánari upplýsingar um útboðið er að finna í útboðskerfi FSRE, TendSign.is.
Leiðbeiningar varðandi skráningu og skil tilboða er að finna á hér.
Útboðsgögn afhent: | 26.06.2025 kl. 12:07 |
Skilafrestur | 11.07.2025 kl. 12:00 |
Opnun tilboða: | 11.07.2025 kl. 13:00 |