Home Fréttir Í fréttum Mygla í leikskólanum Ægisborg

Mygla í leikskólanum Ægisborg

6
0
Ægisborg er í Vesturbænum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Enn á ný er kom­in upp mygla í leik­skól­an­um Ægis­borg í Reykja­vík, en út­tekt verk­fræðistof­unn­ar COWI sýn­ir fram á raka­skemmd­ir í hús­næðinu sem og að þar þríf­ist mygla á nokkr­um stöðum.

Mælt er með ýms­um aðgerðum til úr­bóta, að þétta út­veggi og taka ein­angr­un af þeim, end­ur­múra og ein­angra og þétta sprung­ur. Rífa þarf upp gól­f­efni í hluta skól­ans, þétta glugga eða skipta um, svo nokkuð sé nefnt. Þá kem­ur fram gagn­rýni vegna þess að illa sé staðið að þrif­um í skól­an­um.

Grafal­var­leg staða

Úttekt­in á skól­an­um var gerð sl. vor, en ein­ung­is eru liðin fjög­ur ár frá því að skól­an­um var lokað og ráðist í gagn­ger­ar end­ur­bæt­ur á hús­næðinu vegna raka­skemmda og myglu.

Heimild: Mbl.is