
Framkvæmdir við endurbætur á Kaffivagninum við Grandagarð hafa reynst mun tímafrekari en upphaflega var áætlað. Axel Óskarsson veitingamaður segir í samtali við Morgunblaðið að húsnæðið hafi verið í mun verra ásigkomulagi en talið var.
„Þetta var miklu stærra verk en við ætluðum okkur. Það komu í ljós skemmdir veggir og sitthvað fleira,“ segir Axel en verkið hefur sífellt undið upp á sig. Hafist var handa í byrjun apríl og upphaflega var stefnt að því að opna á ný í byrjun maí. Því var svo frestað fram í lok maí en enn þurfa fastagestir að bíða.
„Nú er allt að gerast. Við vonumst til að geta opnað í kringum mánaðamótin. Við erum að klára að skipta um allar rúður og að mála. Öll eldhústæki eru komin til landsins og við byrjun bráðlega að raða inn. Svo höfum við verið í frábærri samvinnu við yfirvöld varðandi leyfisveitingar, höfum fengið góðar leiðbeiningar og þjónustu.“
Heimild: Mbl.is