Lögregla var kölluð til vegna vinnuslyss í Mosfellsbæ seinni partinn í gær þar sem steypumót hafði fallið á starfsmann byggingarfyrirtækis.
Maðurinn var með meðvitund þegar lögregla kom á vettvang og var fluttur á sjúkrahús. Nánari upplýsingar um líðan hans liggja ekki fyrir.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tildrög slyssins.
Heimild: Ruv.is