
Samtökin Laugarnesvinir afhentu Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfisráðherra um 3.300 undirskriftir í gær þar sem hann er hvattur til að friðlýsa allt Laugarnesið. Ráðherra tók vel í erindið og hét því að ýta á eftir að Reykjavíkurborg og Minjastofnun lykju friðlýsingarferlinu.
Laugarnesvinir hafa lýst sig andvíga stórtækum byggingaráformum á landfyllingum við Laugarnesið.
Heimild: Mbl.is