Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina standa við fjárveitingu og pólitíska ákvarðanatöku um uppbyggingu verknámsskóla.
Ríkisstjórnin hyggst standa við uppbyggingu verknámsskóla. Hliðrun fjármuna vegna uppbyggingar á ekki að hafa áhrif á verkefnið.
„Þetta tekur auðvitað tíma, að fara í svona uppbyggingu, en við erum sannarlega ekki að hinkra með neitt hvað varðar fjárveitingu eða pólitíska ákvarðanatöku. Þetta þarf að hafa sinn gang en við höfum ýtt verulega á eftir þessu og strax í sumar verður komin mynd á þetta,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, um uppbyggingu verknámsskóla.
Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vakti athygli á því á Alþingi í síðustu viku að fjármögnun barna- og menntamálaráðuneytisins fyrir uppbyggingu fjögurra verkmenntaskóla hefði verið hliðrað til næsta árs.
Guðmundur Ingi Kristinsson, barna- og menntamálaráðherra, sagði ekki standa til að slaufa uppbyggingunni heldur hefði fjárheimildinni verið hliðrað til að forgangsraða verkefnum. Í gær greindi ráðuneytið frá því að í sumar myndu framkvæmdir hefjast vegna viðbygginga við Menntaskólann á Ísafirði, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Verkmenntaskólann á Akureyri.
„Stórfurðulegt óþarfavandamál“
Stefán Vagn þakkaði viðbrögð ríkisstjórnarinnar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í gær.
„Ég vil bara koma hér upp og þakka hæstvirtum ráðherra fyrir að hlusta og bregðast við því ákalli sem kom m.a. úr þessum ræðustól og frá skólum og sveitarfélögum landsins og segja bara: Takk fyrir,“ sagði Stefán Vagn.
Guðmundur Ingi svaraði og segir umræðuna um uppbyggingu verknámsskóla með ólíkindum. „Þetta var í sjálfu sér aldrei vandamál og það var eiginlega bara gert stórfurðulegt óþarfavandamál úr einfaldri 300 milljón króna tilfærslu,“ sagði mennta- og barnamálaráðherra.
Uppsafnað fjármagn til framkvæmdanna liggur fyrir hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu upp á 2,6 milljarða króna og hefur hliðrun fjármögnunarinnar því ekki áhrif á fjármálaáætlun sem fyrir liggur á Alþingi.
„Það er rífleg upphæð af uppsöfnuðum fjárfestingarheimildum fyrir umrædda verknámsskóla. Þessi ríkisstjórn ætlar að fara af stað með það sem síðasta ríkisstjórn lofaði, sem er viðbygging við fjóra verknámsskóla til viðbótar. Þetta er eitthvað sem mun strax í sumar fara inn í hönnun og uppsetningu og verkefnaplanið verði mótað,“ segir Kristrún, sem heitir því að uppbygging verknámsskóla verði kláruð á kjörtímabilinu.
Heimild: Ruv.is