Home Fréttir Í fréttum 15.07.2025 Tilboð á byggingarrétt á Sementsreit á Akranesi

15.07.2025 Tilboð á byggingarrétt á Sementsreit á Akranesi

73
0

Tilboð á byggingarrétti á Sementsreit – þrjár spennandi lóðir í hjarta Akraness

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í byggingarrétt á lóðum E1, E2 og C4 á Sementsreitnum, um er að ræða einstaka staðsetningu í nálægð við Langasand, höfnina og gamla miðbæinn.

Svæðið er hluti af stefnumótandi þróun í bænum þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta byggð og öflugt samfélag.

Um er að ræða eftirsóknarverðar lóðir með eftirfarandi byggingarmagni:

Fjöldi íbúða: 66
Heildar byggingarmagn: 12.560 m²
Íbúðarhluti: 8.020 m²
Verslun og þjónusta: 1.440 m²
Bílakjallari: 3.100 m²

Tilboðsgögn verða aðgengileg á rafrænu formi frá 10. júní í gegnum Ajour á þessari slóð. Tillögur og kauptilboð skal gert í samræmi við fyrirliggjandi gögn.

Tillögum og kauptilboðum skal skilað á Ajour vefinn fyrir kl. 12:00, 15. júlí 2025.

Heimild: Akranes.is