Einn var fluttur á sjúkrahús eftir vinnuslys á vinnusvæði á Suðurlandsbraut upp úr hádegi í gær. Dælubíll slökkviliðs og tveir sjúkraflutningabílar voru kallaðir út vegna slyssins.
Tilkynning barst um slysið um kl. 13.30 í gær. Steinþór Darri Þorsteinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að einn hafi verið fluttur slasaður af vettvangi.

Vísir/Aðsend
Steinþór segir að slysið hafi orðið á vinnusvæði nálægt gatnamótum Suðurlandsbrautar og Grensásvegar.
Heimild: Visir.is