Betri samgöngur hafa auglýst eftir tilboðum í annan hluta framkvæmda við Fossvogsbrú, sem innifelur byggingu sjálfrar brúarinnar. Tilboð verða opnuð 26. ágúst næstkomandi.
Framkvæmdir hafnar
Framkvæmdir við fyrsta hluta verksins, sjóvarnir og landfyllingar, hófust í janúar 2025. Á Kársnesi Kópavogsmegin er sá hluti framkvæmda vel á veg kominn og áætlað er að honum ljúki þeim megin í júlí 2025.
Reykjavíkurmegin er gerð landfyllinga nýhafin og er gert ráð fyrir að henni ljúki í nóvember 2026. Stefnt er að útboði í þriðja og síðasta hlutann í þverun Fossvogs, sem inniheldur gatnagerð, veitur og yfirborð, fyrir árslok. Tímaáætlun gerir ráð fyrir að öllum verkhlutum verði lokið haustið 2028.
Fyrsta skref Borgarlínu
EFLA og BEAM Architects hlutu fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni um Fossvogsbrú og hafa unnið hönnun brúarinnar áfram í kjölfar samkeppninnar. Brúin, sem ber heitið Alda, er lykilverkefni í framtíðarsýn um sjálfbærar og vistvænar samgöngur og tengir saman útivistarsvæði, byggð og borgarskipulag í útfærslu sinni.
Hún er hluti af fyrstu lotu Borgarlínunnar og mun tengja sveitarfélögin Reykjavík og Kópavog yfir Fossvoginn. Brúin er hönnuð fyrir Borgarlínuvagna, strætisvagna, gangandi og hjólandi vegfarendur auk forgangsaksturs fyrir neyðarbíla. Brúin verður 270 metra löng og allt að 17 metra breið.
Meginburðarvirkið brúargólfsins verður úr stálbitum í fimm höfum. Það mun sitja á brúarstöplum úr steinsteypu sem grundaðir verða á boruðum stálrörsstaurum niður á fastan berggrunn undir Fossvogi til að tryggja stöðugleika. Útsýnisstaðir, svokallaðir álfasteinar, og lýsing í handriðum og undir brúargólfi eru hluti af hönnun brúarinnar.
Heimild: Efla.is