Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 20.06.2025 Fjölbrautaskóli Suðurnesja (FS) óskar eftir tilboðum í tvö sumarhús

20.06.2025 Fjölbrautaskóli Suðurnesja (FS) óskar eftir tilboðum í tvö sumarhús

11
0

Fjölbrautaskóli Suðurnesja (FS)
óskar eftir tilboðum í tvö sumarhús byggð af nemendum húsasmíðadeildar

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) f.h. FS óskar eftir tilboðum í tvö sumarhús byggð af nemendum húsasmíðadeildar FS á árunum 2023-2025.

Tvö nýbyggð hús til sölu til flutnings– vandaður frágangur og hentugt milliloft

Upplýsingar um hús 1, byggt 2024-2025:
• Grunnflötur: 56 m²
• Milliloft: Um 9 m² (gólfflötur um 22 m²)

Frágangur:
• Húsið er fullklárað að utan og klætt með 32 mm bjálkaklæðningu. Þak er klætt með Alusink.
• Innveggir og loft í herbergjum og holi eru klædd með gifsplötum.
• Loft yfir stofu og risi er panelklætt.
• Á gólfum eru 22 mm nótaðar gólfplötur.
• Rafmagn er fullfrágengið og með uppsettri rafmagnstöflu.

Eftirfarandi fylgir ekki með:
• Lokafrágangur gólfefna
• Innréttingar
• Innihurðir

Einangrun:
• Gólf: 200 mm steinull
• Útveggir: 150 mm steinull
• Þak: 200 mm steinull
• Allir gluggar eru með tvöföldu K-gleri.

Upplýsingar um hús 2, byggt 2023-2024:
• Grunnflötur: 56 m²
• Milliloft: Um 9 m² (gólfflötur um 22 m²)

Frágangur utanhúss:
• Húsið er fullklárað að utan og klætt með 32 mm bjálkaklæðningu
• Þak klætt með Alusink

Frágangur innanhúss:
• Veggir og lofti í holi og herbergjum klædd með gifsplötum
• Loft yfir stofu og risi eru panelklædd
• Gólf eru með 22 mm nótuðum gólfplötum og klædd vínilparketi
• Hvítir gólflistar
• Veggir spartlaðir og málaðir hvítir
• Fóðringar eru í dyragötum
• Rúllugardínur eru í öllum gluggum
• Innihurðir fylgja ekki

Rafmagn og einangrun:
• Rafmagn er fullklárað með tilbúinni rafmagnstöflu
• Gólf einangrað með 200 mm steinull
• Útveggir einangraðir með 150 mm steinull
• Þak einangrað með 200 mm steinull
• Allir gluggar eru með tvöföldu K-gleri

Frekari gögn má nálgast hér:

Fjölbrautaskóli Suðurnesja – Sumarhús

Sumarhús – Arkitektateikningar

Húsin standa á lóð skólans að Sunnubraut 36, Reykjanesbæ. Gunnar Valdimarsson sýnir húsin og er í s: 899-5163, netfang gunnarvald@fss.is.

Sala og afhending: Húsin eru seld í því ástandi sem þau eru við skoðun og afhendast við kaupsamning. Þau eru tilbúin til flutnings og ber kaupanda að fjarlægja fyrir 1. ágúst 2025, eða samkvæmt samkomulagi við skólann. Nánari upplýsingar um húsin er hægt sjá hér:

Fasteignasala: Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir eða senda tölvupóst á eignasala@fsre.is. FS áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum.

Fyrirspurnarfrestur rennur út 16. júní 2025 en svarfrestur FSRE er til og með 18. júní 2025.

Tilboð skal senda á eignasala@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 föstudaginn 20. júní 2025. Merkja skal tilboðin; – FS – Sumarhús.