Vegna umfangsmikilla endurbóta á skólahúsnæði í Laugardal hefur borgarráð samþykkt leigu á færanlegum kennslustofum fyrir svokallað skólaþorp.
Skólaþorpið mun hýsa nemendur úr Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla og Langholtsskóla á meðan framkvæmdir standa yfir í húsnæði skólanna. Fyrsti skólinn til að flytja hluta sinnar starfsemi í skólaþorpið er Laugarnesskóli.

Stefnt að flutningi fyrstu stofanna á lóðina í júlí
Lægsta tilboð barst frá fyrirtækinu Stólpi Gámar og er gert ráð fyrir að leigusamningurinn gildi í fimm ár frá afhendingu. Borgin mun bera kostnað vegna jarðvinnu, undirstaða og lagna og hófst sú vinna í vikunni.

Skólaþorpið mun samanstanda af fimm skólastofum sem fluttar verða frá öðrum skóla í Reykjavík auk þess sem samið hefur verið um kaup á 11 stofum til viðbótar. Gert er ráð fyrir að fyrstu tíu stofurnar verði afhentar á fyrri önn næsta skólaárs.
Stefnt er að því að fyrstu fjórar stofurnar verði afhentar til úttekta í september/október 2025 og næstu sex um mánuði seinna. Þó þarf að hafa í huga að framkvæmdum sem þessum fylgir alltaf hætta á að eitthvað ófyrirséð komi upp á.
Undirbúningur fyrir flutning húsanna sem borgin á þegar og standa við Sæmundarskóla í Grafarholti mun hefjast á næstu dögum, áætlað er að flytja þau í júlí.
Heimild: Reykjavik.is