Home Fréttir Í fréttum Engin skýr stefna um malbikun

Engin skýr stefna um malbikun

30
0
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Innviðaráðherra seg­ir enga skýra stefnu vera til staðar í því hvort eigi að mal­bika eða not­ast við svo­kallaða klæðningu í vega­gerð. Þetta seg­ir Eyj­ólf­ur Ármanns­son innviðaráðherra í sam­tali við mbl.is.

Borið hef­ur á því und­an­farið að mal­biki „blæði“ þegar vel viðrar, sér­stak­lega á Vest­ur­landi, en hiti veld­ur þessu. Slík­ar aðstæður geta valdið tjóni á öku­tækj­um og hættu fyr­ir öku­menn.

Fé­lag ís­lenskra bif­reiðaeig­enda hef­ur talað um neyðarástand í vega­kerf­inu í þessu sam­hengi.

Mal­bik lagt. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Fimm sinn­um dýr­ara

„Vega­gerðin hef­ur óskað eft­ir því að fá að mal­bika meira. Mal­bik er fimm sinn­um dýr­ara. Það hef­ur í för með sér ör­ugg­ari vegi og minna viðhald,“ seg­ir Eyj­ólf­ur.

Ráðherr­ann seg­ir „frá­bært ef hægt væri að mal­bika meira“. Hann seg­ir það hins veg­ar vera kostnaðarspurs­mál.

„Það er ekki búið að móta neina stefnu. Við ætl­um að setja þrjá millj­arða auka­lega í þetta núna,“ seg­ir hann. Það er í sam­ræmi við það sem kem­ur fram í fjár­auka­lög­um.

Fram­kvæmda­stjóri Vega­gerðar­inn­ar, Bergþóra Krist­ins­dótt­ir, seg­ir meira bera á blæðingu mal­biks í ár en und­an­far­in ár.

Heimild: Mbl.is