Home Fréttir Í fréttum Skúli byggir hótel við Seljalandsfoss

Skúli byggir hótel við Seljalandsfoss

100
0
Skúli segir að hótelið verði staðsett vel sunnan við þjóðveginn til að hámarka útsýnið til fjalla og sjávar. Ljósmynd: BIG

Skúli í Subway hyggst reisa nýtt hótel við Seljalandafoss sem verður í svipuðum stíl og Hótel Jökulsárlón.

Fyrir tveimur árum keypti Skúli Gunnar Sigfússon, eða Skúli í Subway eins og hann er gjarnan kallaður, jörðina Eystra-Seljaland. Tilgangur kaupanna var að eignast hlut í Seljalandsfossi en hann sá fljótlega tækifæri á jörðinni fyrir hóteluppbyggingu.

Skúli hefur síðan þá keypt aðra jörð á Seljalandstorfunni, Seljalandssel, og eignaðist með þeim kaupum 40% hlut í Seljalandsfossi.

Hann er vel kunnugur hótelstarfsemi en Skúli opnaði Hótel Jökulsárlón í júní í fyrra. Hann hefur einnig rekið bændagistingu á Reynivöllum frá árinu 2015.

„Hótel Jökulsárlón hefur fengið það góðar móttökur að ég ákvað að ég myndi byggja svipað hótel þarna við Seljalandafoss. Hótelið verður líklegast með um eða yfir 100 herbergi, eða svipað og Hótel Jökulsárlón sem er með 120 herbergi.“

Heimild: Vb.is