
Framkvæmdir eru nú í gangi víða um land vegna ofanflóðavarna og verður sumarið nýtt vel til uppbyggingar varnarmannvirkja. Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára er gert ráð fyrir 900 milljón kr. aukningu til málaflokksins í þeim tilgangi að hraða brýnustu verkefnum og framkvæmt verður fyrir tæplega 4 milljarða kr. á þessu ári.
Framkvæmdir við ofanflóðavarnir eru langt komnar og hefur verið lokið við að reisa um 70% þeirra varna sem nauðsynlegar eru til að verja íbúðarhús á fimmtán þéttbýlisstöðum víða um land.
Á Bíldudal var nýlega boðinn út lokaáfangi í uppbyggingu varna fyrir byggðina sem felst í uppbyggingu á bröttum varnargörðum ofan byggðar, vestan Búðargils. Miðað er við að þeim framkvæmdum ljúki árið 2028.

Á Patreksfirði verður unnið að því að ljúka við gerð bráðavarna í og við Stekkjagil. Bráðavarnirnar eru hluti af lokavörnum fyrir byggðina við gilið og er ætlað að draga úr hættu vegna krapaflóða í næstu húsum við farveginn. Á Patreksfirði stendur jafnframt til að ljúka við frágang varna ofan hafnar (Hóla, Mýra og Urðargötu).
Unnið er að endurbótum á varnargörðum á Flateyri, sem felast í því að reisa þrjár raðir af bröttum varnarkeilum ofan núverandi leiðigarða, svo koma megi í veg fyrir að flóð berist yfir garðana, eins og raunin varð í janúar 2020. Jafnframt verður hafnarsvæðið varið, þar sem garðarnir auka hættu á því svæði.

Stefnt er að því að vinna lagfæringar á farvegi krapaflóða eftir Bæjargili í Ólafsvík á Snæfellsnesi í sumar. Þá eru framkvæmdir við snjóflóðavarnargarða undir Bjólfi á Seyðisfirði á lokastigi og gert ráð fyrir að verkframkvæmdum ljúki þar að mestu á næsta ári.
Í Neskaupstað er unnið að byggingu garða og keilna undir Nes- og Bakkagiljum auk þess sem endurbætur eru að hefjast á stoðvirkjum í upptakasvæði Drangagils. Með þessum framkvæmdum verður uppbyggingu varna ofan byggðar í Neskaupstað að mestu lokið.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Snjóflóðavarnargarðar hafa ítrekað sannað gildi sitt og þess vegna leggur ný ríkisstjórn áherslu á að hraða brýnustu verkefnum með auknum fjárveitingum í fjármálaáætlun. Næsta haust mun ég mæla fyrir frumvarpi á Alþingi sem er ætlað að styrkja umgjörð ofanflóðavarna og sporna gegn dvöl fólks utan leyfilegs nýtingartíma í húseignum á hættusvæðum. Það er óþolandi og óboðlegt að fólk setji sjálft sig og viðbragðsaðila í hættu með slíkri hegðun, og við þessu þarf að bregðast.”
Heimild: Stjornarradid.is