
Rannsóknarstarf lögreglunnar í Ósló í Noregi í máli sem hún lýsir sem „hnitmiðuðu verkefni í bráttunni við skipulagða afbrotahópa í Suður- og Austur-Ósló“ leiddi lögreglumenn að íbúð í Lørenskog, skammt austur af höfuðborginni, sem tveir litáískir karlmenn höfðu tekið á leigu gegnum netleiguþjónustuna Airbnb.
Var þetta í nóvember í fyrra, en við leit í íbúðinni fann lögregla fjölda málningarfata auk þess sem mikil málning var þar á gólfum og hanskar ataðir málningu fundust í bifreið sem mennirnir höfðu tekið á leigu.
Við eftirgrennslan reyndust málningarföturnar í íbúðinni innihalda hass sem reyndist – er öll kurl voru komin til grafar – vega tæplega 200 kílógrömm og þótti lögreglu ljóst að leigutakarnir höfðu nýtt íbúðina sem eins konar hasslager og selt efnið þaðan í heildsölu, það er með þeim hætti að til þeirra leituðu kaupendur sem keyptu mikið magn í einu.

Bíða dóms í gæsluvarðhaldi
Urðu lögreglumenn, sem fylgdust með íbúðinni, í tvígang varir við slíka sölu, eftir því sem Line Borgen rannsóknarlögreglukona greinir norska ríkisútvarpinu NRK frá.
„Efnunum var pakkað í málningarfötur. Þegar við réðumst til inngöngu sáum við það glöggt af ummerkjum á vettvangi að efnin höfðu verið tekin úr málningarfötunum og umpakkað fyrir sölu,“ segir Borgen enn fremur.
Hafa mennirnir tveir, sem handteknir voru í lögregluaðgerðinni, setið í gæsluvarðhaldi allar götur síðan og bíða nú dóms. Verjendur þeirra vildu lítið ræða við fjölmiðla er eftir því var falast.
„Lögregla þekkir vel til kaupendanna,“ segir rannsóknarlögreglukonan að lokum, en lætur þess enn fremur getið að erlendu borgararnir, er nú sæta gæsluvarðhaldi, séu henni ekki kunnugir að neinu leyti.
NRK-II (stór hassmál áberandi í Noregi undanfarið)
Heimild: Mbl.is