
Í hverfisskipulagi efra Breiðholts eru heimildir til að byggja á lóðum fjölbýlishúsa við Austurberg. Heimilt er að byggja ofan á húsin, á bílastæðunum, auk þess sem leyfi er til að stunda atvinnustarfsemi innan íbúða.
Þetta kemur fram í hverfisskipulagi sem Reykjavíkurborg vísaði til vegna fyrirspurnar Morgunblaðsins um hvers vegna bygging Fjölbrautaskólans í Breiðholti fór ekki í grenndarkynningu.
Í svari Reykjavíkurborgar kemur fram að ekki þurfi að grenndarkynna framkvæmdir sem samþykktar eru í hverfisskipulagi og því hafi bygging skólans ekki verið kynnt.
Í hverfisskipulagi efra Breiðholts, sem telur 633 síður, kemur fram að umtalsverð uppbygging er áformuð við Austurberg og Hraunberg. Við Austurberg 2-20 eru skilmálar um bílastæði úr eldra deiliskipulagi felldir úr gildi og yfirfærðir í nýja skilmála hverfisskipulags.
Byggingarreitir á lóðum eru stækkaðir og heimild gefin fyrir viðbótarhæð á fjölbýlishús með því skilyrði að lyftu sé komið fyrir. Viðbótarbyggingarheimildir eru gefnar fyrir viðbyggingar og heimilað að stunda atvinnustarfsemi innan íbúða. Einnig verður heimilað að byggja sorpskýli, hjólaskýli og smáhýsi á lóðunum auk þess sem fjöldi bílastæða á lóð verður endurskilgreindur.
Við Austurberg 28-38 verður heimilt að byggja tveggja hæða nýbyggingar á bílastæðum við húsin. Samkvæmt skipulaginu eiga nýjar uppbyggingarheimildir að hafa það að markmiði að nýta landið betur, styrkja byggð, byggðamynstur og götumynd. Miðað er við að í nýbyggingu sé atvinnustarfsemi og íbúðir aðallega á efri hæðum.
Einnig stendur til að byggja húsnæði á yfir 100 bílastæðum við FB og sundlaugina auk þriggja hæða húss á bílastæðum við Gerðuberg.
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag.
Heimild: Mbl.is