
Eigendur skrifstofuhúsnæðis í miðborginni hafa sýnt því áhuga síðustu misserin að breyta húsnæðinu í íbúðir.
Nýlega tók skipulagsfulltrúi Reykjavíkur til afgreiðslu fyrirspurn frá eiganda húsanna Hafnarstrætis 5 og 7 um hvort leyft yrði að útbúa íbúðir á 2., 3. og 4. hæð húsanna, Tryggvagötumegin.
Þetta eru tvö sambyggð hús sem áður hýstu skrifstofur Landsbankans. Á jarðhæð eru verslanir og veitingahús.
Í umsögn verkefnastjóra skipulagsfulltrúa kemur fram að áformað sé að innrétta þarna 18 litlar íbúðir. Íbúðirnar verði 1-3 herbergja, 22-51 fermetri að stærð.
Heimild: Mbl.is