Í gær voru opnuð tilboð í útboðsverkið „Jarðvinna og veitur, Fífilsgata og Hrafnsgata”
Eftirtalin tilboð bárust :
Kostnaðaráætlun verksins er 569.253.760 kr. án vsk.
Verkið felst meðal annars í endurgerð Fífilsgötu milli Hringbrautar og Gömlu Hringbrautar, upprif á hluta Hrafnsgötu og fullgera götuna frá Fífilsgötu austur-fyrir inngang að Barnaspítala.
Leggja á nýjar fráveitu- og vatnsveitulagnir, setja niður fituskilju í Hrafnsgötu og breyta dælubrunni, útbúa og setja niður stokka og brunna fyrir háspennulagnir, jarðvegsskipta á hluta svæðis, gerð neyðarreinar í hægri beygju frá Hringbraut inn á Fífilsgötu, færa ljósastólpa við Hringbraut og Fífilsgötu, útbúa hjáleið fyrir strætó í gegnum núverandi umferðareyjar á Fífilsgötu og inn að Vatnsmýrarvegi vestan við Fífilsgötu, fylla í hluta Burknagötu að bílastæðahúsi, leggja snjóbræðslulagnir, malbika stíga og götur, helluleggja og ganga frá yfirborði og merkingum á svæðinu.
Einnig gerð steypts stoðveggjar og tröppu vestan meðferðarkjarna ásamt steyptrar rofastöðvar vestan við Barnaspítala, upp við Barónsstíg.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist í júní og að framkvæmdum ljúkí í desember.
Heimild: NLSH ohf.