Home Fréttir Í fréttum 820 milljóna kaup í miðbænum

820 milljóna kaup í miðbænum

54
0
Ljósmynd: Sigtryggur Sigtryggsson

Alva fasteignir keypti atvinnuhúsnæði að Rauðarárstíg 27 og hluta af bílageymslu af Eik fyrir alls 820 milljónir.

Alva fasteignir ehf. hefur keypt 1.904 fermetra atvinnuhúsnæði að Rauðarárstíg 27 í miðbæ Reykjavíkur af Eik fasteignafélagi á 744 milljónir króna.

Á sama tíma gekk Alva einnig frá kaupum á tæplega 57% eignarhlut Eikar í 938 fermetra bílageymslu í fjöleignarhúsinu Þverholti 14, sem er staðsett bakvið fasteignina að Rauðarárstíg 27. Kaupverð eignarhlutarins í bílageymslunni nam 76 milljónum.

Alva fasteignir er í eigu fjárfestingarfélagsins Alva Capital. Eigandi þess félags er Skorri Rafn Rafnsson.

Umrætt félag auglýsir nú eftir framkvæmdastjóra en í atvinnuauglýsingu kemur fram að það hafi í gegnum tíðina komið að stofnun félaga á borð við Netgíró, Heimkaup, Inkasso og Moberg. Megin áherslur félagsins séu fasteignaþróun, hótelrekstur, útleiga og rekstur fasteigna. Það ætli sér stóra hluti í fasteignaþróun á næstu misserum.

Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.

Heimild: Vb.is