Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir tilboði í útboðsverkið I6054 – Matsdeild bráðamóttöku LSH í Fossvogi.
Verkið er í formi alverktöku en tilboðs er leitað í hönnun, framleiðslu á húseiningum og reisa nýja matsdeild fyrir bráðamóttöku á lóð Landspítala Íslands í Fossvogi alls um 700 fermetra.
Í húsnæðinu verða meðal annars 20 legurými, vaktherbergi, lín og lager, fundarherbergi og tengigangur yfir í núverandi byggingu LSH í Fossvogi. Nánari lýsingu má sjá í meðfylgjandi verklýsingu og teikningum.
Um útboðið gildir ÍST 30:2012 Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir.
Bjóðendur eru hvattir til að senda inn fyrirspurnir og ábendingar um hvað eina sem hefur áhrif á tilboðsgerð þeirra. Spurningar og svör verða meðhöndluð í hinu rafræna útboðskerfi.
Útboðsgögn afhent: | 06.03.2025 kl. 14:25 |
Skilafrestur | 27.03.2025 kl. 13:00 |
Opnun tilboða: | 27.03.2025 kl. 13:15 |