F.h. Skrifstofu framkvæmda og viðhalds á Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:
Þjónustusamningur raflagna – fjögur EES útboð, nr 16103 – 16104 – 16105 – 16107.
Fjöldi eigna er samtals 180 í þessum fjórum útboðum.
Þau atriðið sem verktaki skal sinna eru meðal annars.
- Almennt viðhald og þjónusta á öllum raflögnum og búnaði samkvæmt ofantöldu og öðru því er tengist raflögnum í fasteignum og lóðum þeirra.
- Reglubundnar þjónustuskoðanir á öllum raflögnum og búnaði samkvæmt ofantöldu og öðru því er tengist raflögnum í fasteignum og lóðum þeirra.
- Annast reglubundið eftirlit með leiðar og neyðarlýsingu.
Útboðsgögn í öllum útboðunum verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:30 þriðjudaginn 25. febrúar 2025
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvefinn. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
______________________________________________________________
EES útboð nr. 16103 Þjónustusamningur raflagna. Hverfi 6 og 7.
Opnun tilboða: Þriðjudaginn 1. apríl 2025, kl. 10:00.
______________________________________________________________
EES útboð nr. 16104 Þjónustusamningur raflagna. Hverfi 8, 9 og 10.
Opnun tilboða: Miðvikudaginn 2. apríl 2025, kl. 10:00.
______________________________________________________________
EES útboð nr. 16107 Þjónustusamningur raflagna. Hverfi 4 og 5
Opnun tilboða: Fimmtudaginn 3. apríl 2025, kl. 10:00.
_____________________________________________________________
EES útboð nr. 16105 Þjónustusamningur raflagna. Hverfi 1, 2 og 3.
Opnun tilboða: Föstudaginn 4. apríl 2025, kl. 10:00.