F.h. Skrifstofu framkvæmda og viðhalds á Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:
Þjónustusamningur pípulagna – fjögur EES útboð, nr 16108 – 16109 – 16110 – 16111.
Fjöldi eigna er samtals 163 í þessum fjórum útboðum.
Þau atriðið sem verktaki skal sinna eru meðal annars.
- Almennt viðhald og þjónusta á öllum pípulögnum og búnaði samkvæmt ofantöldu og öðru því er tengist pípulögnum í fasteignum og lóðum þeirra.
- Reglubundnar þjónustuskoðanir á öllum pípulögnum og búnaði samkvæmt ofantöldu og öðru því er tengist pípulögnum í fasteignum og lóðum þeirra.
Útboðsgögn í öllum útboðunum verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 mánudaginn 25. febrúar 2025
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvefinn. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
______________________________________________________________
EES útboð nr. 16110 Þjónustusamningur pípulagna hverfi 6 – 7.
Opnun tilboða: Þriðjudaginn 1. apríl 2025, kl.10:15.
______________________________________________________________
EES útboð nr. 16111 Þjónustusamningur pípulagna hverfi 8 – 9 – 10 .
Opnun tilboða: Miðvikudaginn 2. apríl 2025, kl.10:15.
______________________________________________________________
EES útboð nr. 16109 Þjónustusamningur pípulagna hverfi 4 – 5.
Opnun tilboða: Fimmtudaginn 3. apríl 2025, kl.10:15.
______________________________________________________________
EES útboð nr. 16108 Þjónustusamningur pípulagna hverfi 1 – 2 – 3.
Opnun tilboða: Föstudaginn 4. apríl 2025, kl.10:15.