Umhverfis- og mannvirkjasvið fyrir hönd Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í byggingu á nýrri steinsteyptri, göngubrú/undirgöngum í götustæði Borgarbrautar, stígagerð að aðliggjandi stígum, uppsetningu á gabíona (grjótkörfur) stoðveggjar og uppsetningar á lýsingu.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með föstudeginum 21. febrúar 2025.
Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.
Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!
Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar eftir að búið er að sækja um þau og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.
Óski bjóðendur eftir kynningarfundi verður hann í Ráðhúsi Akureyrarbæjar 4. hæð þann 4. mars 202 kl. 13:00
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 21. mars 2025 kl. 13:15 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.