Home Fréttir Í fréttum Aðgerðahópur skipaður um bráðaaðgerðir í húsnæðismálum

Aðgerðahópur skipaður um bráðaaðgerðir í húsnæðismálum

39
0
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað aðgerðahóp um bráðaaðgerðir í húsnæðismálum og úrbætur til lengri tíma. Í hópnum sitja þrír þingmenn, einn úr hverjum stjórnarflokki, auk fulltrúa frá ráðuneytinu og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Hópurinn starfar út kjörtímabilið í samræmi við áherslur nýrrar ríkisstjórnar.

<>

Hlutverk aðgerðahópsins er fyrst og fremst að kortleggja áskoranir í húsnæðismálum og leggja fram tillögur að aðgerðum. Markmiðið er að landsmenn búi við húsnæðisöryggi og jafnrétti í húsnæðismálum og að skapa jafnvægi á húsnæðismarkaði.

„Við boðuðum bráðaaðgerðir í húsnæðismálum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar enda þolir ástandið á húsnæðismarkaði enga bið. Að sama skapi er mjög mikilvægt að aðgerðahópurinn horfi fram á veginn og leggi fram tillögur að aðgerðum og kerfisbreytingum til lengri tíma til að koma á heilbrigðari húsnæðismarkaði.

Við ætlum okkur að ráðast í þjóðarátak í húsnæðisuppbyggingu þar sem áhersla verður lögð á að fjölga íbúðum með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði og auka húsnæðisöryggi fólks,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Vinna hópsins grundvallast á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins svo og fyrirliggjandi aðgerðaáætlun húsnæðisstefnu sem samþykkt var á Alþingi síðastliðið sumar. Hún er einnig liður í endurskoðun húsnæðisstefnu og eftirfylgni með skuldbindingum stjórnvalda til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í febrúar 2024.

Aðgerðahópurinn er þannig skipaður:

• Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins, formaður
• Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar
• Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar
• Lísa Margrét Sigurðardóttir, lögfræðingur í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu
 Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Ekki er greitt fyrir setu í hópnum.