Home Fréttir Í fréttum Ríkissjóður Íslands seldi einbýlishús á undirverði

Ríkissjóður Íslands seldi einbýlishús á undirverði

50
0
Mynd: Mbl.is

Rík­is­sjóður Íslands aug­lýsti ein­býl­is­hús við Báru­götu 3 til sölu á dög­un­um. Um er að ræða 185 fm ein­býli sem reist var 1934. Húsið hef­ur ekki verið notað sem ein­býl­is­hús held­ur sem skrif­stofu- og rann­sókn­ar­hús­næði.

<>

Þegar húsið var aug­lýst til sölu var ásett verð 159.500.000 kr. Það þykir ekki sér­lega hátt verð miðað við ein­býl­is­hús á þess­um stað. Hins­veg­ar kom það fram að húsið yrði selt í því ástandi sem það væri og ljóst að það þyrfti á viðhaldi að halda.

Húsið stend­ur á eign­ar­lóð. Aust­an meg­in við húsið er bíl­stæði sem hægt er að nýta sem stæði fyr­ir tvo bíla. Í kring­um húsið er gró­inn garður sem stát­ar af æðis­gengnu gull­regni en í fast­eigna­aug­lýs­ingu á mbl.is kem­ur fram að um fal­leg­asta gull­regn á Íslandi sé að ræða.

Nú hef­ur húsið verið selt. Kaup­end­ur eru Ein­ar Björg­vin Sig­ur­bergs­son og Ang­el­ine Nelima Stuma. Þau greiddu 153.000.000 kr. fyr­ir húsið og var sér­stak­lega tekið fram í kaup­samn­ingi að eign­in væri seld í því ástandi sem hún væri.

Heimild: Mbl.is