Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir á Vestursvæði og Norðursvæði 2025, blettanir með klæðingu.
Blettun á Vestursvæði með þjálbiki
|
150.000 m3
|
Blettun á Norðursvæði með þjálbiki
|
150.000 m3
|
Flutningur steinefna
|
90.000 m3 *km
|
Flutningur bindiefna
|
37.500 m3 *km
|
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 17. febrúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. mars 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.