Vegagerðin býður hér með út öflun og/eða framleiðslu á steinefni fyrir Vestursvæði 2025 (Snæfellsnes).
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í eitt ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar tvisvar sinnum, eitt ár í senn.
Steinefni í hálkuvarnarsand 2/4
|
850 m3
|
Steinefni í klæðingar 4/8
|
1.110 m3
|
Steinefni í klæðingar 8/11
|
1.600 m3
|
Steinefni í klæðingar 11/14
|
1.300 m3
|
Efnið skal afgreitt fyrir 9. maí 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 13. febrúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 10:00 þriðjudaginn 18. mars 2025.
Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.