Home Fréttir Í fréttum 28.02.2025 Forval að samkeppni um listaverk í nýbyggingu Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

28.02.2025 Forval að samkeppni um listaverk í nýbyggingu Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

16
0
Mynd: NLSH.is

Háskóli Íslands í samstarfi við Nýjan Landspítala ohf. (NLSH) og Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) bjóða myndlistarmönnum að taka þátt í forvali að lokaðri samkeppni um listaverk í nýbyggingu Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands (HVS).

<>

Um er að ræða listaverk innanhúss, utanhúss og á lóð nýbyggingar HVS. Með listaverkum er átt við hvers konar fasta og lausa listmuni, svo sem veggverk unnin beint á veggi, lágmyndir, höggmyndir og aðra listræna fegrun. Sérstaklega er óskað eftir tillögum að listaverkum sem geta verið eiginlegur byggingarhluti, að hluta eða í heild, og órjúfanlegur hluti af byggingunni, inni eða úti. Arkitektar byggingarinnar hafa lagt til möguleg svæði innan hennar fyrir listaverk.

Meginmarkmið samkeppninnar er að gæða þetta verkefni hugmyndaauðgi og hugviti listamanna sem mun njóta sín sem órjúfanlegur hluti heildarinnar um ókomin ár.

Áherslur dómnefndar eru:

  • Styrkleiki heildarhugmyndar
  • Listrænt gildi tillögu
  • Að verkið verði hluti af heildarhönnun nýbyggingarinnar
  • Að verkið verði eiginlegur byggingarhluti og hluti af byggingunni
  • Að verkið verði úr varanlegu efni
  • Hindri ekki umgang um það svæði sem það verður hluti af
  • Sé vandað
  • Sé endingargott
  • Sé með viðhaldskostnað í lágmarki

Húsnæðið er sérhannað fyrir þarfir Heilbrigðisvísindasviðs, kennslu- og rannsóknaaðstaða verður bætt og færð í nútímalegt horf og samnýting og sveigjanleiki aukin til muna. Áhersla er á aðgengi fyrir alla, góða hljóðvist, dagsbirtu og alla innivist s.s. loftræsingu og hitastig.

Samkeppnin mun fara fram eftir samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna, þ.e. lokuð samkeppni með opnu forvali. Í fyrri áfanga samkeppninnar, forvali, mun forvalsnefnd velja fimm myndlistarmenn og/eða listamannahópa úr innsendum þátttökutilkynningum til þátttöku í seinni hluta samkeppninnar.

Tilkynning um þátttöku skal innihalda nafn/nöfn þátttakenda, kennitölu/-r og netfang/-föng. Stuttan texta þar sem gerð er grein fyrir áhuga á verkefninu ásamt forsendum og hæfni til þess að útfæra varanleg inni og/eða útilistaverk. Ferilsskrá og myndir af fyrri verkum. Rétt til að tilkynna þátttöku í forvali hafa allir myndlistarmenn. Tungumál samkeppninnar er íslenska.

Fyrirspurnir í forvalshluta samkeppninnar skal senda á netfangið: trunadur@nlsh.is fyrir 21.febrúar.

Umsóknir um þátttöku sendist á netfangið: trunadur@nlsh.is fyrir kl. 16:00, 28. febrúar 2025.