Home Fréttir Í fréttum Kælis­miðjan Frost kaupir allt hluta­fé í TG raf

Kælis­miðjan Frost kaupir allt hluta­fé í TG raf

74
0
Frá vinstri: Jósef Jósefsson, einn eiganda TG raf, Guðmundur Hannesson, framkvæmdastjóri Frost, Tómas Guðmundsson, einn eiganda TG raf, Ingi Þór Reynisson, einn eiganda TG raf, og Rúnar Þór Sigursteinsson, fjármálastjóri Frost. Ljósmynd: Aðsend mynd

Hjá félögunum munu starfa alls 100 manns á starfstöðvum á Akureyri, Grindavík, Garðabæ, Hafnarfirði, Selfossi og Kolding í Danmörku.

<>

Kælismiðjan Frost ehf. hefur náð samkomulagi um kaup á TG raf ehf. og er hluti kaupverðs greiddur með hlutafé í Frost.

„Þannig myndast breiður og sterkur eigendahópur beggja félaga og verður samstæðan ein sú öflugasta á sviði kælitækni, rafbúnaðar og sjálfvirkni á Íslandi,“ segir í fréttatilkynningu.

Kælismiðjan Frost hefur í meira en 30 ár sérhæft sig í kæli- og frystitengdum iðnaði fyrir matvælaiðnaðinn með það að markmiði að skila framleiðendum og neytendum betri nýtingu og ferskara hráefni. Á tímum mikillar þróunar í sjálfvirkni og upplýsingatækni hefur markmið Frost síðustu fimm ár verið að byggja upp og efla félagið á sviði rafmagns, stýringa og sjálfvirkni.

Kælismiðjan Frost velti ríflega 2,4 milljörðum króna og hagnaðist um 76 milljónir eftir skatta árið 2023. Eignir félagsins námu 1,3 milljörðum og eigið fé 931 milljón króna í árslok 2023. Fjárfestingarfélagið Kaldbakur og samvinnufélagið KEA eru stærstu hluthafar Frost með sitthvorn 20,75% hlut.

TG raf er alhliða rafverktaki sem hefur í yfir 20 ár boðið upp á faglega viðhaldsþjónustu og breytingar í skipum ásamt þjónustu rafbúnaðar fyrir útgerðir, verksmiðjur, byggingarverktaka og önnur fyrirtæki með yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á sviði iðnaðar og sjálfvirkni.

TG raf velti 778 milljónum króna og hagnaðist um tæplega 32 milljónir í fyrra. Eignir félagsins námu 248 milljónum og eigið fé 61 milljón í lok síðasta árs. Tómas Guðmundsson er aðaleigandi TG raf með 70% hlut samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins á móti Jósef Jósefssyni og Inga Þór Reynissyni.

Hjá félögunum munu starfa alls 100 manns á starfstöðvum á Akureyri, Grindavík, Garðabæ, Hafnarfirði, Selfossi og Kolding í Danmörku.

„Samstarf félaganna mun mynda stoðir undir enn sterkari einingu á sviði kælitækni, rafbúnaðar og sjálfvirkni með aukinni sérþekkingu, slagkrafti og þjónustustigi við viðskiptavini beggja félaga. Saman geta fyrirtækin boðið upp á mun víðtækari og fjölbreyttari þjónustu á öllum sviðum starfseminnar þar sem hlúð verður að kjarnastarfsemi beggja fyrirtækja sem stefnt er á að auka og efla til framtíðar.“

Guðmundur Hannesson, framkvæmdastjóri Frost, mun taka við framkvæmdastjórn TG raf en að öðru leyti mun Tómas Guðmundsson stýra starfseminni sem fyrr. Félögin munu taka sér þann tíma sem þarf til að samþætta starfsemi beggja félaga og tryggja viðskiptavinum bestu þjónustu áfram sem áður fyrr.

„Það er búið að vera afar ánægjulegt ferli síðan í vor að kynnast eigendum TG raf og finna að hjá þeim býr mikil reynsla og þekking sem að passar afar vel við hugmyndafræði okkar um aukinn fókus á rafmagns og sjáfvirknisvið til að auka við þjónustustigið hjá okkar viðskiptavinum. Að sama skapi mun reynsla og þekking Frost nýtast viðskiptavinum TG raf,“ segir Guðmundur.

Fyrr á árinu náði Frost samningi við japanska framleiðandann Yaskawa um dreifingar og umboð á þeirra vörum á Íslandi, þar á meðal iðntölvubúnaði, hraðabreytum, robotum og fleira sem mun félagið segir að muni styrkja Frost og TG raf í þróun og þjónustu verkefna til framtíðar.

Heimild: Vb.is