Borgarráð Reykjavíkurborg hefur samþykkt ósk umhverfis- og skipulagssviðs um að stöðva framkvæmdir við endurbætur á leikskólanum Laugasól við Leirulæk og heimild til að rífa húsið til að hægt sé að hanna og reisa nýjan leikskóla á lóðinni.
Þetta var samþykkt á fundi borgarráðs í vikunni. Endurbætur á efra húsi leikskólans, sem reist var 1965, hafa staðið yfir síðan í maí 2024 en í ljós hefur komið að jarðvegurinn sem byggingin stendur á sé ekki burðarhæfur. Samningi við verktaka hefur því verið sagt upp.
Í bókun meirihlutans segir að vegna þessa séu forsendur við frekari endurbætur brostnar og því heimili borgarráð að núverandi hús verði rifið.
Verkið fólst í breytingum og endurbótum efri hæðar leikskólans ásamt því að fjölga leikstofum með því að breyta niðurgröfnum kjallara í jarðhæð. Þegar grafið var frá kjallara kom í ljós að engar undirstöður, eða sökklar, voru undir botnplötu hússins og jarðvegsfylling sem húsið hvíli á væri því ekki burðarhæf.
Fyrirsjáanleiki í kostnaði
Verðfræðistofan Hnit hafði verið fengin til að gera tvær úttektir á byggingunni og þá var Efla fengin til að leggja mat á hvort rétt væri að halda áfram með endurbæturnar og styrkja burðarvirkið eða þá rífa núverandi byggingu og láta reisa nýjan leikskóla. Lagði Efla til að réttast væri að rífa bygginguna með tilliti til gæða og fyrirsjáanleika í kostnaði. Þá myndi einnig skapast möguleikar á nýju fyrirkomulagi bygginga innan leikskólalóðarinnar.
„Meirihlutinn leggur mikla áherslu á að nýr leikskóli á lóðinni fari strax í uppbyggingu, verði í miklum gæðum og rísi hratt. Yfirstandandi er umfangsmikið átak sem miðar að því að fjölga plássum í leikskólum og vinna til baka pláss í leikskólum sem ekki er hægt að nýta vegna framkvæmda og er Laugasól hluti af því,“ segir í bókuninni.
Eitt það vandræðalegasta
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins samþykkja í sinni bókun að Laugasól verði rifinn en leggi áherslu á að skynsemi ráði för við uppbyggingu nýs leikskóla. Þá er hvatt til þess að ný leikskólabygging verði byggð af hófsemd.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins segir málið eitt það vandræðalegasta sem hafi komið upp í borginni: Mál sem enginn skilji. „Flokkur fólksins hefur óskað upplýsinga um hversu miklu fé hefur verið varið í endurbætur á húsnæði leikskólans Laugasól í Reykjavík og hvort ekki hafi verið hægt að sjá og meta burðarstyrk í jarðvegi og undirstöðum áður en ráðist var í framkvæmdirnar. En ekki er öll vitleysan eins: Vandinn er bara að svona mál eru ekki ný af nálinni í borgarkerfinu,“ segir í bókunni.
Heimild: Visir.is