Home Fréttir Í fréttum Opnun útboðs: Efni fyrir uppsteypu á sökklum, plötu og veggjum í íþróttamiðstöð...

Opnun útboðs: Efni fyrir uppsteypu á sökklum, plötu og veggjum í íþróttamiðstöð í Árnesi

323
0
Tölvumynd af fyrirhuguðu íþróttahúsi

Úr fundargerð Sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps þann 04.12.2024

<>

 

Tilboð í steypu, kambstál og einangrun

​​​Hinn 15. nóvember 2024 voru auglýst tvö sjálfstæð útboð, steypa og kambstál og einangrun fyrir byggingu íþróttamiðstöðvar í Árnesi. Opnun tilboða fór fram 2. desember.

———————————————————————————–

Eftirfarandi tilboð bárust í verkið: Steypa:  

Steypustöðin ehf, kt. 660707-0420 35.588.880 kr.

B.M. Vallá ehf, kt. 450510-0680 30.652.000 kr.

Kostnaðaráætlun verksins nam 31.742.400 kr.

———————————————————————————–

Eftirfarandi tilboð bárust í verkið: Kambstál og einangrun:  

Húsasmiðjan ehf, kt. 551211-0290 11.046.227 kr.

Land og verk ehf, kt. 5109140230 15.978.573 kr.

Byko ehf, kt. 460169-3219 11.523.008 kr.

Kostnaðaráætlun verksins nam 13.913.100 kr.

———————————————————————————–

 

Í útboðsskilmálum kom fram að við val á tilboðum muni verkkaupi miða við lægsta verð en að við val á tilboðum verði einungis litið til gildra tilboða frá bjóðendum sem uppfylla kröfur í kafla 0.1.3 í útboðsgögnum ásamt öðrum kröfum sem gerðar voru í útboðsgögnunum. Eftir yfirferð tilboða uppfylla allir lægstbjóðendur kröfur sem settar voru á bjóðendur.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að taka tilboði B.M. Vallá ehf að upphæð 30.652.000 kr. í steypu og að taka tilboði Húsasmiðjunnar ehf. að upphæð 11.046.227 kr. í kambstál og einangrun.