Vegagerðin býður hér með út eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Fossvogsbrú (BL170), landfyllingar. Verkið er hluti af 1. lotu Borgarlínu og uppbyggingu fyrir þróunarsvæði í Skerjafirði.
Gera skal landfyllingar báðum megin Fossvogs. Reykjavíkur megin felur verkið í sér gerð um 2 ha landfyllingar og 740 m sjóvarna utan við núverandi strandlínu frá Skerjafirði í norðvestri að Kýrhamri í norðaustri.
Á Kársnesi felur verkið í sér gerð um 0,3 ha landfyllingar utan við núverandi strandlínu og 220 m af nýrri sjóvörn ásamt um 0,4 ha fyllingum á landi. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar – Verkefnastofu Borgarlínu, Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og á grundvelli matsþátta og verðs . Ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Áætlað er að verkinu ljúki í byrjun árs 2027.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með fimmtudeginum 7. nóvember 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. desember 2024.
Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þann 19. desember 2024 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.