Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Lokið við síðustu steypu í bílakjallara Nýs Landspítala

Lokið við síðustu steypu í bílakjallara Nýs Landspítala

100
0
Mynd: NLSH.is

Vinna við bílakjallara gengur vel og nú er unnið við að klára tengiganga, upp með bílakjallara, sem liggur norðan megin við mannvirkið og tengist við tengiganga meðferðarkjarna.

<>

Einnig er unnið við aðra hæð tengiganga upp við meðferðarkjarna og áframhald tengigangs með norðurhlið.

Síðasta plata við tengigang upp með meðferðarkjarna verður steypt fljótlega.

Á sama tíma vinnur verktaki við frágang inn í bílakjallara sem verður tekinn í notkun í október til að geyma efni í sorp og lín kerfi meðferðarkjarna.

Heimild: NLSH.is