Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu og klæðingu á 2,2 km kafla Upphéraðsvegar (931) og gerð efra burðarlags og klæðingu á 2,2 km kafla Fljótsdalsvegar (933) á Austursvæði.
Helstu magntölur á Upphéraðsvegi eru:
- – Fylling og fláafleygar 2.900 m3
- – Neðra burðarlag (Styrktarlag) 4.100 m3
- – Efra burðarlag 1.900 m3
- – Tvöföld klæðing 14.000 m2
- – Frágangur fláa 19.000 m2
Helstu magntölur á Fljótsdalsvegi eru:
- – Efra burðarlag 1.600 m3
- – Tvöföld klæðing 12.500 m2
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 20. september 2016.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Búðareyri 13-15 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 9. maí 2016. Verð útboðsgagna er 4000 kr.
Skal skila tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. maí og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.