Home Fréttir Í fréttum 28.06.2016 Dýrafjarðargöng, forval

28.06.2016 Dýrafjarðargöng, forval

254
0
Dýrafjarðargöng

Vegagerðin auglýsir eftir þátttakendum í forvali vegna jarðganga milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, ásamt byggingu tilheyrandi forskála, brúa og vega. Um er að ræða 8,0 m breið, 5,3  km löng jarðgöng í bergi, styrkingu ganga, lagnir og vegyfirborð, raf- og stjórnbúnað þeirra, um 300 m langa steinsteypta vegskála  og um 9,0 km langa vegi utan ganga. Í göngin skal leggja háspennulagnir 33 KV og 66 KV fyrir Orkubú Vetfjarða og Landsnet.

<>

Heiti verkefnisins er:  Dýrafjarðargöng

Helstu magntölur eru:

  • Gröftur  jarðganga                                  310.000 m3
  • Sprautusteypa                                           14.000 m3
  • Forskeringar                                              50.000 m3
  • Fylling                                                       500.000 m3

Forvalsgögn verða send í tölvupósti þeim sem óska eftir að taka þátt í forvali frá og með mánudeginum 9. maí 2016. Óskir um forvalsgögn  skal senda á póstfangið olafur.k.kristjansson@vegagerdin.is, með upplýsingum um nafn fyrirtækis, nafn tengiliðar ásamt tölvupóstfangi og símanúmeri.

Forvalsgögn eru á ensku og samskipti á forvalstíma mega vera á ensku, dönsku, sænsku eða norsku, auk íslensku. Útboðsgögn verða á íslensku og öll samskipti á útboðs- og samningstíma verða á íslensku.

Skila skal útfylltum forvalsgögnum í lokuðu umslagi merktu á eftirfarandi hátt til Vegagerðarinnar Borgartúni 7 (móttaka)  í síðasta lagi þriðjudaginn 28. júní  2016.

Vegagerðin, móttaka

Borgartúni 7

105 Reykjavík

 Norðfjarðargöng

Forval

Einungis gögn sem hafa borist Vegagerðinni þriðjudaginn 28. júní 2016, fyrir lok skrifstofutíma (kl 16:00)  eða eru sannanlega póstlögð fyrir þann tíma eru tekin gild.

Forvalið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.