Óskað er eftir tilboði í almennan snjómokstur í Borgarnesi 2024 – 2026
Verkið felst m.a. í almennum snjómokstri í Borgarnesi með þar til gerðu moksturstæki, (meðsnjóskóflu og/eða snjóplóg/snjótönn).
Almennur snjómokstur telst m.a. mokstur gatnakerfis innan
þéttbýlismarka Borgarness, bílastæða og aðkomu að ýmsum stofnunum Borgarbyggðar.
Einnig felstverkið í brottflutningi á snjó með flutningstæki innan þéttbýlismarka en slíkt telst til undantekningartilfella.
Afhending gagna hefst 20.08.2024 kl 11:00 og má nálgast útboðsgögn á útboðsvef Borgarbyggðar á Ajour.
Áætlaðar magntölur:
Snjómokstur gatna með traktorsgröfu og fjölplóg: 200 klst.
Mokstur á snjó sem flytja á burt: 20 klst.
Akstur með snjó á vörubíl sem flytja á burt: 20 klst.
Tilboðum skal skila eigi síðar en miðvikudaginn 11.9.2024 fyrir kl 11:00 í gegnum útboðsvef Borgarbyggðar á Ajour.