Home Fréttir Í fréttum Opnun útboðs: Bygging leik- og grunnskóla á Bíldudal

Opnun útboðs: Bygging leik- og grunnskóla á Bíldudal

259
0

Úr fundargerð Bæjarráðs Vesturbyggðar sem haldinn var þann 19. ágúst sl.

<>

Lögð fyrir tilboð í byggingu leik- og grunnskóla á Bíldudal.

Björn Jóhannesson lögmaður sveitarfélagsins sat liðinn ásamt Magnúsi Árnasyni og Geir Gestsssyni starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs Vesturbyggðar.

Bæjarráð Vesturbyggðar hefur yfirfarið öll tilboð sem borist hafa vegna útboðs á byggingu grunnskóla og leikskólabyggingar á Bíldudal.

Þrjú tilboð bárust í verkið, tvö þeirra uppfylltu skilyrði útboðsins.

Kostnaðaráætlun fyrir verkið nam 380.485.217 kr.

Land og verk    525.045.191 kr. 138% af kostnaðaráætlun
Hrífunesskógur 551.180.220 kr. 145% af kostnaðaráætlun

Eftir skoðun og mat hefur bæjarráð ákveðið að hafna báðum tilboðum þar sem þau voru bæði verulega yfir kostnaðaráætlun.

Bæjaráð samþykkir að fela sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs taka saman minnisblað um næstu skref í málinu.

Samþykkt samhljóða.

Heimild: Vesturbyggð