Home Fréttir Í fréttum 27.08.2024 Úlfarsárdalur – Stækkun hverfis – Umhverfisfrágangur 2024 – Urðartorg

27.08.2024 Úlfarsárdalur – Stækkun hverfis – Umhverfisfrágangur 2024 – Urðartorg

136
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Úlfarsárdalur – Stækkun hverfis – Umhverfisfrágangur 2024 – Urðartorg, útboð nr. 16061.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Framkvæmdin felur í sér yfirborðsfrágang á norðvesturhluta Urðartorgs og gangstétt við Skyggnisbraut. Urðartorg er staðsett á gatnamótum Skyggnisbrautar og Rökkvatjarnar. Yfirborð torgsins og gangstétt verða hellulögð. Torgið verður tengt núverandi lóðum með annars vegar steyptum tröppum og hins vegar tröppum úr timbri ásamt setbekkjum. Á torginu verða gróðurbeð úr stáli og bekkir úr timbri og stáli. Gera þarf ofanvatnsrás meðfram Rökkvatjörn. Einnig þarf að setja upp lýsingu á torginu bæði ljósastaura og lýsingu í bekkjum.

Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi: 

  • Upprif og förgun á malbiki og kantsteini núverandi
  • Upprif og förgun á núverandi hellulögn
  • Uppgreftri fyrir veitulagnir
  • Fullnaðarfrágangur fyllinga undir götu og gangstéttar
  • Fullnaðarfrágangur fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu og raflagna
  • Fullnaðarfrágangur hellulagnar og kantsteina
  • Fullnaðarfrágangur blágrænna beða
  • Fullnaðarfrágangur götulýsingar

Helstu magntölur verksins eru:

  • Upprif malbiks og hella 1.400   m
  • Púkkmulningur 600   m2
  • Jarðvinna fyrir lagnir 700   m3
  • Malbik 1.230   m2
  • Hellur 900   m2
  • Ecoraster 1.300   m2
  • Fráveitulagnir 140   m
  • Vatnslagnir 100   m
  • Hitaveitulagnir 170    m
  • Þökulögn 900   m2
  • Gróðursetning planta 750   stk

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12:00: þann 12. ágúst 2024.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 27. ágúst 2024.