Home Fréttir Í fréttum Skúli í Subway reisir glæsi­hótel við Jökuls­ár­lón

Skúli í Subway reisir glæsi­hótel við Jökuls­ár­lón

54
0
Athafnamaðurinn Skúli Gunnar Sigfússon, oft kenndur við Subway, hefur opnað glæsilegt hótel við Jökulsárlón í Suðursveit í Hornafirði. SIGURJÓN ANDRÉSSON

Nýtt hótel sem nefnist Hótel Jökulsárlón, eða Glacier Lagoon Hotel á ensku, er risið á Reynivöllum við Jökulsárlón í Suðursveit í Hornafirði. Skúli Gunnar Sigfússon, sem oft er kenndur við Subway, er eigandi.

<>
Hótelið fellur vel að umhverfinu, sem er ekki af verri endanum.
SIGURJÓN ANDRÉSSON

Skúli segir að hugmyndin að þessu hóteli hafi kviknað árið 2015, en þá keypti hann jörðina Reynivelli ásamt frænda sínum. Þetta hafi verið í undirbúningi síðan.

Veitingastaðurinn heiti Gunna á Leiti, til höfuðs ömmu Skúla. Veitingastaðurinn er opinn öllum.
SIGURJÓN ANDRÉSSON

„Það komu ýmis vandamál upp, þar á meðal Covid, skipulagsmál og svoleiðis. En það tókst svo að byggja þetta á fjórtán mánuðum, þegar að þessu kom,“ segir Skúli.

Maður hefur séð það verra.
SIGURJÓN ANDRÉSSON

Hótelið opnaði í fyrsta sinn þann 25. júní, en ekki öll herbergin til að byrja með. „Við gerðum þetta í lotum til að leyfa starfsfólki að aðlagast og svona,“ segir Skúli. Nú sé búið að opna fyrir öll herbergin, en það sé enn verið að byggja heitu pottana og gufuna. „Það verður tilbúið eftir svona tvær vikur.“

Gamla vél afa Skúla til sýnis. „Gamli gráni frá leiti“
SIGURJÓN ANDRÉSSON

Herbergin eru 120, og þar af eru átta svítur. Um er að ræða tvær álmur á tveimur hæðum.

Fjölskyldan í þessu saman
Skúli rekur hótelið ásamt konu sinni og tveimur dætrum. Hann segir að hingað til hafi þetta gengið mjög vel hjá þeim, alveg áfallalaust.

Glæsileg setustofa.
SIGURJÓN ANDRÉSSON

Veitingastaðurinn á hótelinu heitir Gunna á leiti, eftir ömmu Skúla sem bjó á leiti í Suðursveit. Skúli er ættaður úr Suðursveit, þar sem pabbi hans var fæddur og uppalinn. Amma hans hét Guðrún og bjó á bænum leiti, kölluð Gunna á leiti. Þar var Skúli í sveit til margra ára.

Hér getur maður tyllt sér og fengið sér drykk.
SIGURJÓN ANDRÉSSON

Skúli hefur nú átt lögheimili í Suðursveit í fimm ár, og segist vera þar mjög mikið. Hann segir viðtökurnar við hótelinu betri en hann þorði að vona, bókunarstaðan sé mjög góð. „Við höfum náttúrulega ekkert mikinn samanburð en við erum mjög sátt við byrjunina,“ segir Skúli.

Þessi sófi er tilvalinn til dæmis til að sitja í og bíða meðan makinn er ennþá að gera sig til uppi í herbergi.
SIGURJÓN ANDRÉSSON

Fagnar skemmtilegri viðbót í hótelflóru sveitarfélagsins
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri Hornafjarðar, segir með ólíkindum hvað hótelið fellur vel inn í umhverfið, og fagnar skemmtilegri viðbót í annars fjölbreytta flóru gististaða og afþreyingar í sveitarfélaginu.

Efri hæðin.
SIGURJÓN ANDRÉSSON

„Ferðaþjónustan er önnur meginstoðin undir atvinnulífinu í Hornafirði, og í sveitarfélaginu eru mörg flott hótel og glæsileg ferðaþjónusta,“ segir Sigurjón.

Ætli maður geti fengið nóg af þessu útsýni?
SIGURJÓN ANDRÉSSON

Hann segir að á hverri einustu nóttu gisti jafnmargir á hótelum og gististöðum í sveitarfélaginu og allir íbúar sveitarfélagsins. Þá séu ótaldir þeir sem eru í tjöldum, ferðavögnum og keyra í gegnum sveitarfélagið.

Rölt um svæðið.
SIGURJÓN ANDRÉSSON

Heimild:Visir.is