Home Fréttir Í fréttum 09.08.2024 Borgarbyggð. „Grunnskólinn í Borgarnesi endurbætur á matshluta 04“

09.08.2024 Borgarbyggð. „Grunnskólinn í Borgarnesi endurbætur á matshluta 04“

106
0
Mynd: Borgarbyggð

Verkið felur í sér framkvæmd á uppbyggingu á hluta grunnskóla þar sem upp kom mygla. Innviðum hefur þegar verið fargað, mengað efni ss einangrun, gólfefni, milliveggir og loftaefni hefur verið fjarlægt og húsnæðið mygluhreinsað.

Verkið skal vinna samkvæmt útboðs og verklýsingu „Grunnskólinn í Borgarnesi endurbætur á matshluta 04“ og verða gögn aðgengileg á útboðsvef Ajour: https://borgarbyggd.ajoursystem.net

Verkið skal framkvæma samkvæmt útboðsgögnum og öðrum gögnum sem þar er vísað til. Innifalið í tilboði skal vera allt það sem til þarf til að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum.

Verktaki skal skila verkinu til verkkaupa í samræmi við ákvæði útboðsgagna.

Húsnæðið sem um ræðir inniheldur 6 kennslustofur á tveimur hæðum, fundarrými, setustofu og ganga, ásamt hálofti og er um xxx fermetrar að heildarfleti.

Bjóðendum er bent á að kynna sér vel allar aðstæður á svæðinu og sérstaklega bent á nálægð við grunnskóla í fullum rekstri á verktíma.

  • Útboð opnar: 05.07.2024, kl 20:00
  • Skilafrestur fyrir spurningar: 29.07.2024, kl 09:00
  • Skilafrestur tilboðs: 09.08.2024, Kl 14:00
  • Verklok: 28.02.2025

Skoða nánar

Loading..