Home Fréttir Í fréttum Vel miðar á Torfunefi á Akureyri

Vel miðar á Torfunefi á Akureyri

38
0

Nýja hafnarsvæðið við Torfunef á Akureyri byrjað að taka á sig mynd.

<>

Á Feisbókarvegg Hafnasamlags Norðurlands er i morgun gerð stutt en afar áhugaverð grein gerð fyrir framkvæmdunum sem eru í gangi, hverng þeim miðar og hvernig ætlað er að svæðið verður að loknum framkvæmdum.

,,Framkvæmdum við Torfunef miðar vel áfram. Eins og reikna mátti með var töluvert sig á svæðinu. Því er lokið og er nú verið að steypa bryggjukantinn.

Stefnt er að því að bjóða út smíði á veituhúsi í haust og verða lóðirnar á svæðinu jafnframt auglýstar þá. Skútur og lítil skemmtiferðaskip (exhibition skip) geta lagst að bryggju við Torfunef og tengst þar rafmagni. Gert er ráð fyrir að landtenging fyrir lágspennutengingu verði tilbúin 2026.

Á Torfunefi er gert ráð fyrir stúku sem hægt er að nota fyrir viðburði ásamt verslun og veitingasölu. Torfunef verður vonandi skemmtileg viðbót við miðbæinn en gaman væri ef það yrði til þess að tengja bryggjusvæðið betur við Ráðhústorgið.

Látum fylgja myndir af svæðinu eins og það er í dag á framkvæmdarstigi, ásamt teikningum af svæðinu sem gefa mynd af því hvernig Torfunef kemur til með að líta út.”

Heimild: Vikubladid.is